BOLLE óáfengt vín
hvernig er það búið til og er það í alvöru gott?

Fyrir örfáum árum var „óáfengt vín“ nánast skammaryrði: flatur þrúgusafi í vínflösku. Það hefur breyst. Óáfeng vín vinna nú til alvöru vínverðlauna, standa á vínseðlum Michelin-veitingastaða og eru orðin fastur hluti af borðhaldi fólks sem vill halda glasinu en sleppa áfenginu. Hér er það sem skiptir máli þegar þú velur þitt fyrsta (eða næsta) óáfenga vín.

 

Hvað er óáfengt vín?

Óáfengt vín er alvöru vín, gerjað úr vínþrúgum eins og hvert annað vín, sem áfengið er síðan fjarlægt úr. Það er lykilatriðið: þetta er ekki safi og ekki „víndrykkur“, heldur vín sem hefur gengið í gegnum sömu gerjun og hefðbundið vín áður en áfengið er tekið út.

Þess vegna heldur gott óáfengt vín því sem safi hefur ekki: sýru, tannínum, steinefnum og dýptinni sem gerjunin skapar.

 

Hvernig er áfengið fjarlægt úr víni?

Algengasta aðferðin er eiming í lofttæmi: við undirþrýsting sýður áfengið við mun lægra hitastig en venjulega, svo hægt er að ná því úr víninu án þess að sjóða burt bragðið. Aðrar aðferðir byggja á fíngerðri síun. Í öllum tilfellum er markmiðið það sama; að ná áfenginu út en skilja karakter vínsins eftir.

Vandinn er að áfengi ber bragð og fyllingu. Þegar það fer, tapast oft hluti af líkama vínsins. Þar skilur á milli framleiðenda: hvað gera þeir eftir afáfenginguna?

 

Hvað er tvígerjun og hverju breytir hún?

Tvígerjun þýðir að vínið er gerjað aftur eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Þannig endurheimtir vínið dýpt, loftbólur og lifandi karakter sem fer annars þegar áfengi er tekið úr.

BOLLE, ítalska vörumerkið sem VÍRA flytur inn, byggir alla sína línu á þessari aðferð, Sparkling Rosé þeirra er eina tvígerjaða óáfenga vínið í heimi. Lengst gengur BOLLE Grand Reserve, fyrsta og eina óáfenga vín heims sem er þroskað á gerjum (sur lie) í níu mánuði, sama aðferð og gefur bestu kampavínum sinn brioche-keim.

 

Er óáfengt vín í alvöru gott?

Besta svarið er að láta þá dæma sem smakka vín í atvinnuskyni:

  • 93/100 hjá Wine Enthusiast: BOLLE Sparkling Rosé fékk hæstu einkunn sem óáfengt vín hefur nokkru sinni hlotið.
  • Forbes valdi BOLLE Blanc de Blancs besta óáfenga vín heims.
  • Gullverðlaun á London Wine Competition 2025 fyrir BOLLE Still Chardonnay, í keppni þar sem bragðið eitt ræður.
  • Yfir 100 Michelin-veitingastaðir hafa sett BOLLE á vínseðilinn.

Óáfengt vín bragðast ekki nákvæmlega eins og áfengt vín, það er yfirleitt léttara í fyllingu. En vel gert óáfengt vín stendur fyrir sínu sem vín, ekki sem málamiðlun.

 

Hvernig velur þú óáfengt vín?

Þrjár spurningar duga langt:

  1. Freyðandi eða kyrrt? Loftbólur fyrirgefa margt: freyðivín er öruggasta byrjunin. Kyrr vín (t.d. Chardonnay) gera meiri kröfur til framleiðandans, svo veldu þá vín með verðlaun eða einkunnir á bak við sig.
  2. Hvernig er það framleitt? Leitaðu að vínum sem eru gerjuð eins og vejuleg vín og áfengi svo tekið úr þeim og helst unnin áfram eftir það (tvígerjun, þroskun). Það sést yfirleitt á umbúðum eða vörulýsingu.
  3. Við hvaða tilefni? Fordrykkur og skál kalla á freyðivín; matarborðið á kyrrt vín með góðri sýru.

 

Hvað passar með óáfengu víni?

Sömu reglur og með áfengu víni. Óáfengt freyðivín á borð við Sparkling Rosé er frábært í fordrykkinn og með sjávarréttum og léttum réttum; Blanc de Blancs stendur með forréttum og í skálinni; óáfengt Chardonnay parast við fisk, ljóst kjöt og pastarétti. Berið freyðivínin fram vel kæld, 6–8°C, og kyrru vínin við 8–12°C.

Algengar spurningar – FAQ

Inniheldur óáfengt vín ekkert áfengi?

Vín merkt 0,0% inniheldur ekkert mælanlegt áfengi. Athugaðu merkinguna; hugtakið „óáfengt“ er stundum notað um drykki með snefilmagni undir 0,5%. Öll BOLLE-vínin hjá VÍRA eru 0,0%.

Hentar óáfengt vín barnshafandi konum?

0,0%-vín inniheldur ekkert mælanlegt áfengi og er af mörgum valið einmitt af þeirri ástæðu. Ef þú ert í vafa, ráðfærðu þig við lækni eða ljósmóður.

Er óáfengt vín hitaeiningaminna en venjulegt vín?

Yfirleitt já, áfengi er hitaeiningaríkt, svo þegar það fer lækkar hitaeiningatalan umtalsvert. Nákvæm tala er á næringaryfirlýsingu hverrar flösku.

Hvar fæst óáfengt vín á Íslandi?

VÍRA flytur inn BOLLE-línuna freyðivín og kyrr vín frá 2.890 kr., og sendir frítt um land allt af pöntunum yfir 15.000 kr.