BOLLE
Óáfeng freyði- og kyrrvín með minna en 0,5% áfengi. Vínin koma frá La Mancha á Spáni, nema Chardonnay Reserve sem kemur frá Frakklandi.
Skoðaðu BOLLEUm VÍRA
VÍRA Import ehf. er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem þrjár vinafjölskyldur reka saman. Við flytjum inn gæðadrykki með áherslu á óáfengt og seljum þá í vefversluninni á vira.is. Vörumerkin eru fimm: BOLLE, REBELS 0.0%, BOLD, 24 ICE og BeGin.

Hugmyndin kviknaði við borðstofuborð þegar BOLLE var smakkað í fyrsta sinn og einhver spurði: „Af hverju fæst þetta ekki á Íslandi?“
Síðan þá höfum við unnið að því að koma vörunum á framfæri. Við veljum drykki sem okkur langar að kynna fyrir Íslendingum. Í vefversluninni seljum við aðeins þá sem standast gæðakröfur okkar. Þannig bættist 24 ICE við og í dag eru vörumerkin orðin fimm.
Við smökkum allt sjálf. Við seljum ekkert sem við myndum ekki sjálf bera fram heima. Við gerum sömu gæðakröfur til drykkja með og án áfengis.
Áfengi er valkvætt, gæðin ekki.
Óáfeng freyði- og kyrrvín með minna en 0,5% áfengi. Vínin koma frá La Mancha á Spáni, nema Chardonnay Reserve sem kemur frá Frakklandi.
Skoðaðu BOLLEÓáfengir spírar frá Sviss, tvíeimaðir og með 0,0% áfengi. Þeir koma í stað gins, romms, viskís, amaretto, Campari eða Aperol í kokteilum.
Skoðaðu REBELS 0.0%Ískaffi í dós með þreföldum skammti af espressókaffi og náttúrulegu koffíni. Í hverri dós af BOLD Protein eru 15 g af próteini.
Skoðaðu BOLDFrosnir kokteilar frá Hollandi, með og án áfengis, sem má bera fram beint úr frystinum.
Skoðaðu 24 ICELífrænt handverksgin frá Kaupmannahöfn í ýmsum bragðtegundum.
Skoðaðu BeGinVið tökum vel á móti þér, hvort sem þú ert að velja drykki fyrir matarboð heima eða fyrir gesti í rekstrinum þínum. Við sendum pantanir með Dropp. Ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira er sendingin frí, hvort sem þú sækir hana á afhendingarstað eða færð hana senda heim.
Vanti þig ráðgjöf um hvað passar við tilefnið, hvað á að panta fyrir hópinn eða á vínlistann, sendu okkur línu. Það svarar alltaf einhver úr fjölskyldunum þremur.
Ertu með spurningu? Sendu okkur línu á vira@vira.is eða hringdu í síma 449-6000.
VÍRA Import ehf.