Sendingarskilmálar VÍRA

VÍRA afgreiðir og afhendir flutningsaðilanum Dropp allar staðfestar pantanir innan tveggja virkra daga frá því að pöntun hefur verið staðfest og greiðsla móttekin, nema annað komi skýrt fram við pöntun.

Þú velur á milli tveggja leiða hjá Dropp: að sækja pöntunina á afhendingarstað (Dropp box) eða fá hana senda heim. Sending á afhendingarstað kostar 990 kr. og heimsending 1.690 kr. Sendingin er frí með báðum leiðum ef þú kaupir fyrir 15.000 kr. eða meira. Flutningstími Dropp er 1–3 virkir dagar með báðum leiðum.

Afhendingartími ræðst af þjónustu og afhendingarferlum Dropp og þeirri afhendingarleið sem þú velur við gerð pöntunar. Upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma og sendingarkostnað birtast við pöntun og geta tekið breytingum í samræmi við gildandi verðskrá og skilmála Dropp.

VÍRA áskilur sér rétt til að breyta afhendingarmáta, svo sem að skipta um flutningsaðila, ef nauðsyn krefur, til dæmis vegna tafa, álags eða truflana í kerfum viðkomandi aðila, enda leiði slíkt ekki til aukins kostnaðar fyrir viðskiptavin eða verulega óhagstæðari afhendingarskilmála.

Áhættan af vörunni flyst til kaupanda við afhendingu í samræmi við gildandi neytendalöggjöf. Glatist sending eða skemmist áður en afhending fer fram ber VÍRA ábyrgð samkvæmt lögum.

Reynist vara ófáanleg eða uppseld eftir að pöntun hefur verið staðfest mun VÍRA tilkynna það án ástæðulauss dráttar. Hafi greiðsla þegar verið innt af hendi verður kaupverð endurgreitt tafarlaust, nema kaupandi samþykki að fá sambærilega vöru í staðinn.

Um skil á vörum gilda skilmálar á síðunni Skilaréttur.