Síðast uppfært 25. september 2026.
Hvað eru vafrakökur?
Vafrakaka er lítil textaskrá sem vefsíða vistar í vafranum þínum. Sumar kökur þarf til að vefurinn virki. Aðrar hjálpa okkur að skilja hvernig vefurinn er notaður eða að mæla árangur auglýsinga. Hér er orðið „vafrakökur“ einnig notað um sambærilega tækni.
Hvaða vafrakökur notum við?
Nauðsynlegar vafrakökur
Þessar vafrakökur þarf til að vefverslunin virki, t.d. til að geyma upplýsingar um vörurnar í körfunni og muna hvaða vafrakökur þú leyfir. Þær eru alltaf virkar og notkun þeirra krefst ekki samþykkis.
| Vafrakaka | Frá | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|---|
| woocommerce_cart_hash, woocommerce_items_in_cart | vira.is (WooCommerce) | Geyma innihald körfunnar | Þar til vafranum er lokað |
| wp_woocommerce_session_* | vira.is (WooCommerce) | Tengja körfuna við heimsóknina | 2 dagar |
| cmplz_* | vira.is (Complianz) | Muna hvað þú valdir á kökuborðanum | 1 ár |
Tölfræðikökur (aðeins með samþykki)
Við notum Google Analytics til að sjá hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan fólk kemur og hvernig vefverslunin er notuð.
| Vafrakaka | Frá | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|---|
| _ga, _ga_* | Google Analytics (Google Ireland Ltd.) | Greina heimsóknir á vefinn | 2 ár |
Markaðskökur (aðeins með samþykki)
Við notum Meta Pixel frá Meta Platforms Ireland Ltd. til að mæla árangur auglýsinga á Facebook og Instagram og sýna þér auglýsingar sem henta áhugamálum þínum.
| Vafrakaka | Frá | Tilgangur | Gildistími |
|---|---|---|---|
| _fbp | Meta (Facebook) | Mæla árangur auglýsinga og tengja heimsóknir við auglýsingar | 90 dagar |
Google og Meta geta flutt gögn til Bandaríkjanna. Meðferð gagnanna fer eftir persónuverndarstefnum fyrirtækjanna.
Svona breytir þú valinu
Þú getur breytt valinu eða dregið samþykkið til baka hvenær sem er með því að smella á „Vafrakökur“ neðst á síðunni. Þú getur líka eytt vafrakökum í stillingum vafrans. Athugaðu að vefverslunin virkar ekki rétt ef lokað er á nauðsynlegar vafrakökur.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að vita hvaða persónuupplýsingar við vinnum með og getur beðið um að þær verði leiðréttar eða þeim eytt. Nánar er fjallað um réttindi þín í persónuverndarstefnu VÍRA. Þú getur líka sent kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).
Hafðu samband
VIRA Import ehf., kt. 420925-0770
Bugðufljót 15A, 270 Mosfellsbær
Netfang: vira@vira.is
