Hvernig er óáfengt vín búið til og er það í alvöru gott?

Uppfært 16. október 2026 · 3 mín. lestur

Fimm flöskur af óáfengum vínum frá BOLLE á ljósum stöllum: Chardonnay Reserve, Sparkling Rosé, Grand Reserve, Blanc de Blancs og Still Chardonnay

Fyrir örfáum árum var „óáfengt vín“ nánast skammaryrði: flatur þrúgusafi í vínflösku. Það hefur breyst. Óáfeng vín vinna nú til vínverðlauna, standa á vínseðlum Michelin-veitingastaða og eru orðin fastur hluti af borðhaldi fólks sem vill halda glasinu en sleppa áfenginu.

Hvað er óáfengt vín?

Óáfengt vín er alvöru vín, gerjað úr vínþrúgum eins og hvert annað vín, sem áfengið er síðan fjarlægt úr.

Gerjun mótar ilm og bragð vínsins og greinir það frá ógerjuðum þrúgusafa.

Hvernig er áfengið fjarlægt úr víni?

Ein aðferðin er lofttæmiseiming, þar sem lækkaður þrýstingur gerir kleift að fjarlægja áfengið við lægra hitastig. Einnig eru notaðar himnuaðferðir. Markmiðið er að fjarlægja áfengið og varðveita sem mest af ilmi og bragði vínsins. Með vinnslunni geta þó tapast ilm- og bragðefni.

Vandinn er að áfengi gefur víninu bragð og fyllingu. Þegar áfengið er fjarlægt verður vínið oft léttara. Þar skilur á milli framleiðenda: hvað gera þeir eftir afáfenginguna?

Hvað er tvígerjun og hverju breytir hún?

Við tvígerjun BOLLE er vínið gerjað aftur eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Samkvæmt framleiðanda mótar seinni gerjunin bragð og áferð og myndar jafnframt mestan hluta kolsýrunnar í freyðivínunum.

BOLLE-vínin, sem VÍRA flytur inn, eru öll tvígerjuð. Lengst gengur BOLLE Grand Reserve, sem er þroskað á dreggjum (sur lie) í níu mánuði eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Samkvæmt framleiðanda er það eina óáfenga vínið sem er þroskað á dreggjum eftir afáfengun.

Er óáfengt vín í alvöru gott?

Besta svarið er að láta þá dæma sem smakka vín í atvinnuskyni:

  • Wine Enthusiast gaf BOLLE Sparkling Rosé 93 stig og setti það á listann Top 40 Sparkling Wines of 2026.
  • Liz Thach, Master of Wine, mælti með BOLLE Blanc de Blancs í grein í Forbes í janúar 2025 og Wine Enthusiast gaf því 91 stig.
  • BOLLE Still Chardonnay hlaut gullverðlaun og 95 stig í London Wine Competition 2025.
  • Yfir 75 Michelin-veitingastaðir hafa sett BOLLE á vínseðilinn, samkvæmt framleiðanda.

Óáfengt vín er oft léttara í fyllingu en áfengt vín og bragðast því ekki alveg eins.

Hvernig velur þú óáfengt vín?

Þrjár spurningar duga langt:

  1. Freyðandi eða kyrrt? Loftbólur fyrirgefa margt: freyðivín er öruggasta byrjunin. Kyrr vín (t.d. Chardonnay) gera meiri kröfur til framleiðandans, svo veldu þá vín með verðlaun eða einkunnir á bak við sig.
  2. Hvernig er það framleitt? Skoðaðu hvernig vínið er framleitt og hvort það sé gerjað aftur eða þroskað eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Leitaðu að þessum upplýsingum á umbúðum eða í vörulýsingu.
  3. Við hvaða tilefni? Fordrykkur og skál kalla á freyðivín; matarborðið á kyrrt vín með góðri sýru.

Hvað passar með óáfengu víni?

Sömu reglur gilda og um áfengt vín. Óáfengt freyðivín á borð við Sparkling Rosé hentar sem fordrykkur og með sjávarréttum og léttum réttum. Blanc de Blancs passar með forréttum og hentar vel til að skála. Óáfengt Chardonnay passar með fiski, ljósu kjöti og pastaréttum. Berðu freyðivínin fram við 6–8 °C og kyrru vínin við 8–10 °C.

Algengar spurningar

Inniheldur óáfengt vín ekkert áfengi?

Ekki endilega. Óáfengt vín getur innihaldið lítið magn áfengis. Öll BOLLE-vínin hjá VÍRA eru með minna en 0,5% áfengi. Athugaðu alltaf áfengismerkingu vörunnar.

Hentar óáfengt vín barnshafandi konum?

BOLLE-vínin eru með minna en 0,5% áfengi og eru ekki alveg áfengislaus. Leitaðu ráða hjá lækni eða ljósmóður um áfengisneyslu á meðgöngu.

Er óáfengt vín hitaeiningaminna en venjulegt vín?

Yfirleitt já, áfengi er hitaeiningaríkt, svo þegar það fer lækkar hitaeiningatalan umtalsvert. Nákvæm tala er á næringaryfirlýsingu hverrar flösku.

Hvar fæst óáfengt vín á Íslandi?

VÍRA flytur inn óáfeng freyðivín og kyrr vín frá BOLLE. Sending er frí ef þú kaupir fyrir 15.000 kr. eða meira.

Vörurnar í greininni

Skoða BOLLE-úrvalið