Þrjár óáfengar flöskur: BOLLE Sparkling Rosé, REBELS 0.0% Rosso og REBELS 0.0% Dolce Spritz. Grunnurinn að bleiku drykkjunum okkar.
Í Stóra Bleika pakkanum eru BOLLE Sparkling Rosé 750 ml, REBELS 0.0% Rosso og REBELS 0.0% Dolce Spritz. Úr þeim blandar þú alla bleiku drykkina okkar: Rifsberjarós, Hindberjaroða og Greiprós. Uppskriftirnar eru hér fyrir neðan.
BOLLE Sparkling Rosé er tvígerjað óáfengt freyðivín úr Chardonnay og Pinot Noir, með keim af jarðarberjum, sólberjum og fjólum. Wine Enthusiast gaf því 93 stig.
REBELS 0.0% Rosso er óáfengur bitter í anda ítalskra fordrykkja, með keim af appelsínu, bergamottu og gentíanrót. Dolce Spritz er grunnur í spritz-drykki, með keim af beisksætri appelsínu, rabarbara og sítrus. Báðir eru tvíeimaðir úr náttúrulegum jurtum í Sviss og með 0,0% áfengi.
Pakkinn hentar sem gjöf til gestgjafans eða í þín eigin haustboð.
Bleikur október
Í október renna 30% af söluandvirði til Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands. Af Stóra Bleika pakkanum eru það 3.105 kr. Söluandvirði er hér greitt verð eftir afslátt, án virðisaukaskatts og sendingargjalds. Þetta gildir um kaup á vira.is frá 1. til 31. október 2026.
Í pakkanum:
- BOLLE Sparkling Rosé, 750 ml, <0,5%
- REBELS 0.0% Rosso, 500 ml, 0,0%
- REBELS 0.0% Dolce Spritz, 500 ml, 0,0%
Framreiðsla og geymsla:
- BOLLE Sparkling Rosé: vel kælt, við 6–8 °C, í flautu- eða hvítvínsglasi.
- REBELS 0.0%: þarf ekki að kæla. Eftir opnun skaltu geyma flöskurnar á svölum og skuggsælum stað og neyta innihaldsins innan 6 mánaða.
Innihaldsefni og næringargildi eru á vörusíðu hverrar flösku.
RifsberjarósHaustlegasti drykkurinn okkar. Rifsberjahlaup, klementínusafi og BOLLE Sparkling Rosé með örlitlu af REBELS 0.0% Rosso sem gefur beiskt eftirbragð.
- 30 ml rifsberjahlaup
- 30 ml klementínusafi, nýkreistur
- 5 ml REBELS 0.0% Rosso
- 90 ml BOLLE Sparkling Rosé, vel kælt
- Hrærðu hlaupið út í klementínusafann þar til það leysist upp. Ef hlaupið er stíft hjálpar að velgja safann aðeins.
- Settu safann og Rosso í hristara með ís og hristu vel.
- Sigtaðu í kælt kampavínsglas.
- Fylltu upp með BOLLE Rosé og skreyttu með rifsberjum.
HindberjaroðiHindber og sítróna í coupe-glasi. REBELS 0.0% Dolce Spritz gefur keim af beiskri appelsínu og rabarbara og BOLLE Rosé gefur drykknum freyðingu.
- 30 ml REBELS 0.0% Dolce Spritz
- 30 ml hindberjasíróp
- 30 ml sítrónusafi, nýkreistur
- 60 ml BOLLE Sparkling Rosé, vel kælt
- Settu Dolce Spritz, síróp og sítrónusafa í hristara með ís.
- Hristu vel og tvísigtaðu í kælt coupe-glas.
- Fylltu upp með BOLLE Rosé.
- Skreyttu með blómi eða hindberi.
GreiprósRautt greipaldin, smá beiskja frá REBELS 0.0% Rosso og BOLLE Rosé efst. Ferskur drykkur sem fer vel með mat.
- 20 ml REBELS 0.0% Rosso
- 60 ml safi úr rauðu greipaldini, nýkreistur
- 10 ml agavesíróp
- 90 ml BOLLE Sparkling Rosé, vel kælt
- Settu Rosso, greipaldinsafa og síróp í hátt glas.
- Fylltu glasið af ís og hrærðu.
- Fylltu upp með BOLLE Rosé.
- Skreyttu með sneið af greipaldini.

