Áfengislaus valkostur við þurrt gin — einiber og ferskar jurtir, tvíeimað í Sviss. Grunnurinn í G&T án áfengis.
REBELS 0.0% Botanical Dry er svarið fyrir þau sem sakna gin & tonic þegar áfengið er tekið út af borðinu. Tvíeimaður, áfengislaus spíri með einiber í forgrunni, studdur af ferskum jurta- og sítrustónum — þurr, hreinn og með karakter sem heldur sínu í blönduðum drykk.
Eins og öll REBELS-línan er Botanical Dry framleiddur í Sviss úr náttúrulegum jurtum, tvíeimaður eins og hefðbundið gin og vegan.
Prófaðu:
- G&T 0.0%: 5 cl Botanical Dry + 10 cl tónik + klaki + límónusneið eða gúrkuræma
- Dry Highball: 5 cl Botanical Dry + 10 cl sódavatn + klaki + sítrónubörkur















