Espresso Martini
Kokteillinn sem bíður tilbúinn í ísskápnum
9 MILE Espresso Martini er hinn klassíski kaffikokteill, blandaður með 9 MILE vodka og kaffidrykk og tilbúinn í dós. Þú opnar dósina, hellir í kælt glas og froðan myndast sjálf. Hvorki espressóvél né hristari kemur við sögu.
„Nitro Infusion“ í dósinni myndar þykka, flauelsmjúka froðu þegar þú hellir drykknum í glasið, líkt og á nýhristum kokteil. Drykkurinn hefur sterkt espressóbragð, milda sætu og mjúkt, silkikennt eftirbragð. Austurríska vín- og matartímaritið Falstaff gaf drykknum 92 af 100 stigum.
Berðu 9 MILE Espresso Martini fram með eftirréttinum í matarboðinu eða hafðu hann við höndina á kósíkvöldi yfir sjónvarpinu. Skreyttu froðuna með þremur kaffibaunum.
200 ml 10%



