Allt sem gerir Mojito að Mojito — nema áfengið.
24 ICE 0.0% Mojito er frosinn mocktail-íspinni með ferskri myntu, léttum límónukeim og svalandi karakter kúbverska klassíkerans. Uppskriftin fylgir bragðheild upprunalegu blöndunnar af rommi, sykri, límónusafa, sódavatni og myntu.
Með 0,0% áfengi og aðeins 42 hitaeiningar á pinna er þetta hressing sem hentar öllum í veislunum — líka börnunum, barnshafandi og bílstjóranum.
Geymist í frysti við –18°C eða kaldara.
Bragðast best alveg frosinn.





