Óáfengt gin? Er það til og hvernig bragðast það?
„Óáfengt áfengi“ hljómar eins og mótsögn og strangt til tekið er það það. En á bak við klaufalegt hugtak er ein áhugaverðasta þróun drykkjarmenningar síðustu ára: eimaðir jurtaspírar sem gefa kokteilnum karakter sinn án áfengisins. Hér verður fjalla um hvað þetta er, hvernig það er búið til og hvernig þú blandar G&T sem stendur undir nafni, með 0,0%.
Hvað er óáfengt gin?
Óáfengt gin er eimaður drykkur úr sömu jurtum og hefðbundið gin, einiberjum, sítrus og kryddjurtum en án áfengis í lokaafurðinni. Rétt eins og gin fær hann bragð sitt úr eimingu jurtanna; munurinn er að áfengið fylgir ekki með í flöskuna.
Orðalagið „óáfengt gin“ er í raun einföldun, því heitið gin er lögverndaðra en svo. Réttara er að tala um óáfengan spíra (e. non-alcoholic spirit). Hlutverkið í glasinu er þó það sama og gins: grunnurinn sem ber drykkinn uppi.
Hvað þýðir „óáfengt áfengi“?
„Óáfengt áfengi“ er regnhlífarhugtak yfir drykki sem taka að sér hlutverk sterks áfengis í kokteilum, gin, romm, viskí, bitter án þess að innihalda áfengi. Góðu útgáfurnar eru ekki bragðbætt vatn heldur eimaðar á sama hátt og fyrirmyndin, svo bragðdýptin og beiskjan haldist.
Sama hugsun og er á bak við óáfengt vín: halda handverkinu og karakternum, sleppa áfenginu.
Hvernig er óáfengur spíri framleiddur?
REBELS 0.0%, svissneska línan sem VÍRA flytur inn, er lýsandi dæmi: spírarnir eru tvíeimaðir úr náttúrulegum jurtum — sama aðferð og notuð er við hefðbundið gin og eru vegan. Útkoman er þurr, hreinn spíri með nógu mikinn karakter til að halda sínu í blönduðum drykk, sem er einmitt þar sem ódýrari eftirlíkingar falla.
Línan spannar sex tegundir, hver með sína fyrirmynd:
- Botanical Dry valkosturinn við þurrt gin: einiber í forgrunni, ferskar jurtir og sítrus
- Dark Spice dýpt dökks romms: eik, vanilla og rjómakennd karamella
- Malt Blend fyrir viskístundina: hlýir eikartónar og langt eftirbragð
- Rosso ítalskur bitter aperitivo: appelsína, bergamot og gentian-rót
- Dolce Spritz beisksæt appelsína og rabarbari, grunnurinn í spritzinn
- Sweet Amaretti marsípan, vanilla og kirsuber í Amaretto-hlutverkinu
Hvernig bragðast óáfengt gin?
Þurrt, jurtakennt og hreint en léttara í munni en 40% gin, enda ber áfengið sjálft bæði fyllingu og hita. Þess vegna njóta óáfengir spírar sín best blandaðir: í G&T, highball eða kokteil, þar sem tónikið og klakinn skila áferðinni sem áfengið gerði áður.
Hvernig blandarðu G&T án áfengis?
G&T 0.0%: 5 cl REBELS Botanical Dry + 10 cl tónik + klaki + límónusneið eða gúrkuræma.
Fleiri sem virka fullkomlega:
Dark & Stormless: 5 cl Dark Spice + 10 cl engiferöl + klaki + límónubátur
Whiskey Sour 0.0%: 5 cl Malt Blend + 3 cl sítrónusafi + 2 cl sykursíróp — hrist með klaka
Rosso á klaka: hellt beint yfir klaka, skreytt með kapers — aperitivo á einni mínútu
Algengar spurningar – FAQ
Er óáfengt gin alveg án áfengis?
REBELS 0.0% línan er merkt 0,0%. Athugaðu alltaf merkingar; sumir framleiðendur nota „óáfengt“ um drykki með allt að 0,5%.
Hvað eru margar hitaeiningar í óáfengum spíra?
Mun færri en í áfengi: REBELS Sweet Amaretti er 52 kcal, Rosso 57 kcal og Dolce Spritz 62 kcal í 100 ml.
Hvernig geymist óáfengur spíri eftir opnun?
REBELS 0.0% geymist í 6 mánuði eftir opnun á köldum, dimmum stað.
Hvar fæst óáfengt gin og romm á Íslandi?
VÍRA flytur inn alla REBELS 0.0% línuna. Hægt er að fá 500 ml flösku á 3.990 kr. inn á vira.is.
