Þetta byrjaði allt á einu glasi

Sagan

VÍRA er fjölskyldufyrirtæki í orðsins fyllstu merkingu: þrjár vinafjölskyldur sem stofnuðu félagið saman og reka það enn í dag. Hugmyndin kviknaði ekki á fundi eða í viðskiptaáætlun heldur við borðstofuborð, þegar BOLLE var smakkað í fyrsta sinn og ein spurning sat eftir: af hverju fæst þetta ekki á Íslandi?
Síðan þá höfum við unnið sleitulaust að því að koma vörunum á framfæri — og leitin heldur áfram. Við smökkum, prófum og berum saman drykki sem okkur langar að kynna fyrir Íslendingum, og aðeins það sem stenst okkar eigin kröfur ratar í netverslunina. Þannig bættist 24 ICE við og í dag eru vörumerkin orðin fimm. Þannig verða þau næstu valin líka.

 

Hvernig við veljum

Við smökkum allt sjálf. Ekkert fer í sölu hjá okkur sem við myndum ekki sjálf bera fram heima. Óáfengt er ekki eftiráhugsun. Hjá okkur gilda sömu gæðakröfur um 0,0% og allt annað. Áfengi er valkvætt. Gæðin ekki.

 

Vörumerkin okkar

BOLLE: óáfeng freyði- og kyrrvín frá Ítalíu, gerjuð á ný eftir að áfengið hefur verið fjarlægt. Vínið sem kom öllu af stað.
24 ICE: frosnir kokteilar og mocktails, tilbúnir beint úr frysti.
BOLD: iced espresso með koffíni og próteini, allt að 15 g í dós.
BeGin: handverksgin í ýmsum bragðtegundum.
REBELS 0.0%: óáfengur valkostur við sterkt áfengi í kokteilinn.

 

Fyrir þig — heima eða í rekstri

Hvort sem þú leitar að flottari valkosti fyrir næsta matarboð, tekur pásu frá áfengi án þess að gefa afslátt af upplifuninni eða vilt bjóða gestum eitthvað nýtt, þá tökum við vel á móti þér. Pantanir fara í gegnum Dropp og heimsendingin frí ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira.
Vanti þig ráðgjöf um hvað passar við tilefnið, hvað á að panta fyrir hópinn eða á vínlistann, sendu okkur línu. Það svarar alltaf einhver úr fjölskyldunum þremur.

 

Skoðaðu vöruúrvalið hjá okkur

 

Ertu með spurningu? Sendu okkur línu á vira@vira.is eða hringdu í síma 449-6000

VÍRA Import ehf.
kt: 420925-0770
VSK númer: 158571