Fyrsta og eina óáfenga vín heims sem er þroskað á gerjum (sur lie) í níu mánuði sem skila brioche-keim og rjómakenndri áferð. Takmarkað upplag.
BOLLE Grand Reserve markar tímamót í gerð óáfengra vína: fyrsta og eina óáfenga vín heims sem er þroskað á gerjum. Í níu mánuði hvílir vínið sur lie; aðferðin sem gefur bestu kampavínum sinn einkennandi karakter og þróar við það brioche-tóna og rjómakennda áferð sem engin önnur óáfeng vín bjóða.
Vínið er 90% Chardonnay og 10% Silvaner. Gyllt og tært í glasi, með fínum og fíngerðum loftbólum. Í nefi er elegant brioche-vöndur með tónum af apríkósu, hnetum og votti af sítrus. Bragðið er miðlungsþurrt með lifandi sýru, rúmlega meðalfyllt og með löngu eftirbragði.
Þetta er flaskan fyrir stóru tilefnin, brúðkaupið, áramótin eða afmælið. Þegar ekkert má vanta upp á upplifunina þótt áfenginu sé sleppt. Takmarkað upplag.
Bragðpalletta:
- Þrúgur: 90% Chardonnay, 10% Silvaner
- Þroskun: Níu mánuðir sur lie (á gerjum)
- Útlit: Gyllt og tært, fínar og fíngerðar loftbólur
- Ilmur: Elegant brioche-vöndur með apríkósu, hnetum og votti af sítrus
- Bragð: Miðlungsþurrt með lifandi sýru
- Fylling: Rúmlega meðalfyllt
- Eftirbragð: Langt
- Framreiðsluhiti: 6–8°C
- Pörun: Hátíðarborðið: ostrur, skelfiskur og mjúkir ostar; stendur líka eitt og sér
- Uppruni: La Mancha, Spánn
- Áfengi: <0,5%

