Óáfengt freyðivín sem fékk 91 stig hjá Wine Enthusiast. Lifandi sítrustónar, steinefni og hunang. Tvígerjað úr Chardonnay og Silvaner.
BOLLE Blanc de Blancs er óáfengt freyðivín úr Chardonnay og Silvaner. Wine Enthusiast gaf því 91 stig. Eins og önnur BOLLE-vín er það tvígerjað: gerjað aftur eftir að áfengi er tekið úr því, svo karakterinn haldist.
Í nefi eru sítróna, greipaldin og límóna á grunni af steinefnum og hunangi. Á tungu opnast vínið með suðrænum tónum af mangó og grænu epli, ásamt ristuðum brauðkeim og vott af sedrusviði og múskati. Miðlungsþurrt með ferskri sýru, létt til meðalfyllt og með löngu eftirbragði. Gyllt og tært í glasi.
Blanc de Blancs stendur fyrir sínu við hlið hefðbundinna freyðivína — í skálinni um áramót, með forréttum eða sem fordrykkur sem allir við borðið geta notið.
Bragðpalletta:
- Þrúgur: Chardonnay og Silvaner
- Útlit: Gyllt og tært, lifandi loftbólur
- lmur:Sítróna, greipaldin, límóna, steinefnakeimur og hunang
- Bragð: Miðlungsþurrt með ferskri sýru; mangó, grænt epli og ristaður brauðkeimur, vottur af sedrusviði og múskati
- Fylling: Létt til meðalfyllt
- Eftirbragð: Langt
- Framreiðsluhiti: 6–8°C
- Pörun: Fordrykkur, forréttir, skálin við hátíðleg tilefni
- Uppruni: La Mancha, Spánn
- Áfengi: <0,5%
750 ml flaskan hentar við borðhald. 375 ml flaskan nægir í tvö glös.








