Óáfengur fordrykkur í spritz. Bitursæt appelsína og rabarbari, með fersku sítrusbragði og mildum kryddtónum.
Blandaðu REBELS 0.0% Dolce Spritz við óáfengt freyðivín og sódavatn í spritz eða við tónik ef þú vilt einfaldari drykk. Hann er ekki ætlaður til að drekka óblandaðan.
Af drykknum leggur ilm af beiskum appelsínum og sætum rabarbara. Bragðið er bitursætt, með appelsínu, rabarbara, ferskum sítrus og mildum kryddtónum, og eftirbragðið er örlítið piprað.
Eins og aðrar vörur í REBELS-línunni er Dolce Spritz tvíeimaður úr náttúrulegum jurtum í Sviss. Ekkert áfengi er notað á neinu stigi framleiðslunnar.
Bragðpalletta:
- Innblástur: Ítalskur spritz-fordrykkur, til dæmis Aperol
- Ilmur: Beiskar appelsínur og sætur rabarbari
- Bragð: Bitursæt appelsína, rabarbari, ferskur sítrus og mild krydd
- Eftirbragð: Örlítið piprað, með einkennandi beiskju
- Framreiðsla: Í spritz með óáfengu freyðivíni eða tóniki
- Geymsla: Neyttu innan 6 mánaða frá opnun. Þarf ekki að kæla, en geymdu flöskuna á svölum og skuggsælum stað
- Uppruni: Sviss
- Áfengi: 0,0%
Í 500 ml flösku eru tíu 5 cl skammtar.
Spritz með BOLLE
- 4 cl REBELS 0.0% Dolce Spritz
- 6 cl BOLLE Blanc de Blancs
- 2 cl sódavatn
Fylltu vínglas af klaka, helltu Dolce Spritz, BOLLE og sódavatni yfir og skreyttu með appelsínusneið.
Einfaldur spritz
- 5 cl REBELS 0.0% Dolce Spritz
- 10 cl tónik
Helltu yfir nóg af klaka og skreyttu með appelsínusneið.
Ferskjuspritz með basilíku
- 5 cl REBELS 0.0% Dolce Spritz
- 5 basilíkublöð
- 2 cl ferskjusíróp
- 2 cl límónusafi
- 6 cl ananassafi
- Tónik
Settu allt nema tónikið í glas, fylltu það af klaka og hrærðu. Fylltu upp með tóniki.
Innihaldsefni og næringargildi
Vatn, sykurreyrsíróp (reyrsykur, vatn), eimi úr appelsínuberki (25%), jurtaeimi, náttúrulegt rabarbarabragðefni (0,12%), náttúrulegt bragðefni, útdráttur úr vermút, lakkrís og kryddum, litarefni: E110 og E122, sýra: sítrónusýra, rotvarnarefni: kalíumsorbat.
- Í 100 ml
- Orka: 261 kJ / 62 kcal
- Fita: 0,02 g, þar af mettuð fita: 0 g
- Kolvetni: 15,4 g, þar af sykurtegundir: 15,2 g
- Prótein: 0 g
- Salt: 0 g



















